þriðjudagur, febrúar 03, 2009
mánudagur, október 27, 2008
þriðjudagur, október 21, 2008
Kúturinn minn orðinn 20 ára. Innilega til hamingju með afmælið elsku dúllan mín :) Dísuss 20 ára. Alla vega þá kem ég á föstudaginn á LE PRIK og heilsa upp á þig. Nota bene: allir að fara á LE PRIK á föstudaginn og knúas litla bróðir en ég held að hann ætli að halda sig þar og halda upp á daginn. Gamli gamli, hlakka til að sjá þig...þriðjudagur, október 14, 2008
32C kemur rappinu á kortið
Félagarnir Dabbi T, Emmsjé Gauti og Nagmús hafa stofnað rappsveitina 32C og er fyrsta lag hennar, É É É É, á leið í útvarpsspilun.
Að sögn Dabba T hafði umboðsmaðurinn Ómar Ómar samband við hann og Gauta með það í huga að þeir myndu stofna nýja hljómsveit. „Hann hafði lengi langað til að taka einhverja hljómveit og gera að einhverri alvöru. Hann sagði að það eina sem sér kæmi til hugar væri að ég og Gauti værum í henni," segir Dabbi T. „Við höfðum samband við Magga (Nagmús) og hann sló til og ákvað að vera með."
Dabbi T og Emmsjé Gauti hafa reynslu frá sólóferli sínum og gaf Dabbi til að mynda út sína fyrstu plötu á síðasta ári, Óheflað málfar. Dabbi ætlar að gefa út tvö sólólög áður en 32C fer í gang en eftir það mun hann einbeita sér að nýju sveitinni.
Íslenskt rapp hefur lítið verið í umræðunni að undanförnu og vilja Dabbi og félagar ráða bót á því. Hann játar að rappið hafi á sínum tíma verið að lognast út af en síðan lifnaði það aftur við. „Núna er aftur komin lægð í - fb
Litli bróðir í útrás :) Já Dabbi bróðir er að fara koma fram á Iceland Airwaves NÆSTA fimmtudag :) segir maður ekki .... brjóttu fótlegg ?
föstudagur, september 26, 2008
Sigurjón ,,svali" er búinn að halda í mér lífinu seinustu tvær vikur. Mín er búin að liggja veik og væla í tæpar tvær vikur. Ég er sjálf búin að fá svo mikið leið á sjálfri mér að það hálfa væri nóg. Ekkert smá slæmt kvef sem ég nældi mér í og aumingja þeir sem búa með mér, hóst hóst fengu líka kvef :( En já ég er heppin að eiga þennan gaur að því hann er ekkert smá duglegur að stjana í kringum mig og láta mér líða vel. Það er samt á dagskrá að hrista af sér slenið og reyna að koma sér aftur inn í lærdóminn og aftur í form. föstudagur, september 19, 2008
föstudagur, september 12, 2008



